Fréttir

true

Stórnotendum heimilt að selja inn á kerfið

Landsvirkjun hefur tilkynnt stórnotendum sínum að þeim sé frjálst að endurselja forgangsraforku vegna þröngrar stöðu í raforkukerfinu, kjósi þeir að gera það. Undanfarið hefur Landsvirkjun þurft að grípa til skerðinga hjá stórnotendum vegna þurrkatíðar sem leitt hefur til dræms innrennslis í miðlunarlón og lágrar lónstöðu. Í tilkynningu frá Landsvirkjun kemur fram að í flestum samningum…Lesa meira

true

Héldu upp á dag leikskólans með bæjarferð

Þann 6. febrúar ár hvert er haldið upp á dag leikskólans um allt land. Á leikskólanum Sólvöllum í Grundarfirði var haldið upp á daginn með því að leikskólabörn fóru í valin fyrirtæki í bænum með gjafir. Ugludeild og hluti af Músadeild fóru með listaverk í Ragnar og Ásgeir og Guðmund Runólfsson hf. og Drekadeild fór…Lesa meira

true

Samningur undirritaður við Basalt arkitekta

Samningur Akraneskaupstaðar og Ísoldar fasteignafélags ehf. við Basalt arkitekta ehf. vegna ráðgjafar við hönnun skipulags Jaðarsbakkasvæðisins var undirritaður síðasta þriðjudag. Fram kemur á vefsíðu Akraneskaupstaðar að bæjarstjórn hafi samþykkt tillögu skipulags- og umhverfisráðs um að ganga til samninga við Basalt um ráðgjöf við deiliskipulagsgerð Jaðarsbakkasvæðisins, eftir að Basalt, ásamt þremur öðrum arkitektastofum, skiluðu af sér…Lesa meira

true

Breytingar hjá Sveitarfélaginu Stykkishólmi

Innra stjórnskipulag hefur verið til umræðu og umfjöllunar í stjórnsýslu Sveitarfélagsins Stykkishólms um nokkurt skeið. Lagt var upp með það markmið að skýra stjórnskipulag, ábyrgð og verklag hjá sveitarfélaginu og breyta skipulaginu með það fyrir augum að nýta sem best núverandi mannauð. Fram kemur á vefsíðu sveitarfélagsins að ráðgjafarsvið KPMG var fengið til aðstoðar við…Lesa meira

true

Mikil spenna fyrir úrslitaþætti Idolsins – Sýndur í Bíóhöllinni

Það er að koma að þessu. Ný Idolstjarna Íslands verður krýnd annað kvöld í Idolhöllinni að Fossaleyni í Gufunesi. Anna Fanney Kristinsdóttir, Björgvin Þór Þórarinsson og Jóna Margrét Guðmundsdóttir standa þrjú eftir og keppast um að verða næsta Idol stjarna Íslands. Þema þáttarins verður „Þetta er ég“ og mun hver keppandi flytja eitt lag að…Lesa meira

true

Dregur heldur úr virkni gossins

Samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofu Íslands hefur dregið úr krafti gossins sem hófst í morgun. Nú gýs aðallega á þremur stöðum á gossprungunni sem opnaðist. Þetta svipar til atburðarrásarinnar í gosinu 18. desember þegar virknin færðist á staka gíga nokkrum klukkustundum eftir að gosið hófst. Veðurstofa Íslands vekur athygli á dökkum mekki sem stígur upp um…Lesa meira

true

Frumvarp sem gerir ráð fyrir rekstrarstuðningi til grindvískra fyrirtækja

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, fjármála- og efnahagsráðherra, mælti á Alþingi í dag fyrir frumvarpi um tímabundinn rekstrarstuðning vegna náttúruhamfara í Grindavík. „Markmiðið er að rekstraraðilar sem orðið hafa fyrir verulegu tekjufalli vegna jarðhræringa náttúruhamfara í Grindavíkurbæ geti viðhaldið nauðsynlegri lágmarksstarfsemi, varðveitt viðskiptasambönd og hafið starfsemi á ný með stuttum fyrirvara og tryggt viðbúnað,“ sagði ráðherra…Lesa meira

true

Gosið blasir við af Vesturströndinni

Hið kraftmikla eldgos sem hófst laust eftir klukkan 6 við Sundhnúka á Reykjanesi sést víða af frá sjávarsíðunni á Vesturlandi. Meðfylgjandi eru myndir sem teknar voru í morgun af tveimur af fremstu ljósmyndurum á svæðinu; Þórarni Jónssyni á Akranesi og Ómari Erni Ragnarssyni í Borgarnesi.Lesa meira

true

Hraun flæðir yfir Grindavíkurveg og hætta á að heitt vatn fari af Suðurnesjum

Hraunelfur frá eldgosinu sem hófst við Sundhnúka í morgun náði fyrir nokkru að rjúfa Grindavíkurveg á móts við afleggjarann að Bláa lóninu. Talið er að hraunstraumurinn nái eftir hádegi að heitavatnsæðinni sem fóðrar Suðurnes, ef ekki verður hægt að verja hana. Hættuástandi hefur því verið lýst yfir og mögulegt að heitt vatn fari af öllum…Lesa meira

true

Pottormar á þorrablóti sáu upphaf eldgossins

Árlegt þorrablót pottormanna í Jaðarsbakkalaug á Akranesi hófst um sexleytið í morgun. Þar gæddi fólk sér á ljúffengum veitingum úr Einarsbúð. Reykjanesskaginn blasir við úr pottinum og sá fólkið þegar fyrstu eldglæringar gossins norðan Grindavík fóru að gera vart við sig, en þær áttu svo eftir að stigmagnast eftir því sem gossprungan stækkaði og hraunið…Lesa meira