
Breytingar hjá Sveitarfélaginu Stykkishólmi
Innra stjórnskipulag hefur verið til umræðu og umfjöllunar í stjórnsýslu Sveitarfélagsins Stykkishólms um nokkurt skeið. Lagt var upp með það markmið að skýra stjórnskipulag, ábyrgð og verklag hjá sveitarfélaginu og breyta skipulaginu með það fyrir augum að nýta sem best núverandi mannauð. Fram kemur á vefsíðu sveitarfélagsins að ráðgjafarsvið KPMG var fengið til aðstoðar við verkefnið og vann það í nánu samráði við sveitarfélagið. Tillaga KPMG að skipulagsbreytingum var lögð fram á bæjarstjórnarfundi í desember sl. og var samþykkt samhljóða. Um er að ræða breytingar, með einum eða öðrum hætti, á verkefnum a.m.k. níu starfsmanna sveitarfélagsins en breytingarnar höfðu einnig áhrif á ákveðna starfstitla samhliða breyttum starfslýsingum. Breytingarnar tóku gildi á áramótum.