Pottormar á þorrablóti sáu upphaf eldgossins

Árlegt þorrablót pottormanna í Jaðarsbakkalaug á Akranesi hófst um sexleytið í morgun. Þar gæddi fólk sér á ljúffengum veitingum úr Einarsbúð. Reykjanesskaginn blasir við úr pottinum og sá fólkið þegar fyrstu eldglæringar gossins norðan Grindavík fóru að gera vart við sig, en þær áttu svo eftir að stigmagnast eftir því sem gossprungan stækkaði og hraunið þeyttist hærra upp í loftið.

Pottormar á þorrablóti sáu upphaf eldgossins - Skessuhorn