
Grindavík jarðhræringar
Frumvarp sem gerir ráð fyrir rekstrarstuðningi til grindvískra fyrirtækja
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, fjármála- og efnahagsráðherra, mælti á Alþingi í dag fyrir frumvarpi um tímabundinn rekstrarstuðning vegna náttúruhamfara í Grindavík. „Markmiðið er að rekstraraðilar sem orðið hafa fyrir verulegu tekjufalli vegna jarðhræringa náttúruhamfara í Grindavíkurbæ geti viðhaldið nauðsynlegri lágmarksstarfsemi, varðveitt viðskiptasambönd og hafið starfsemi á ný með stuttum fyrirvara og tryggt viðbúnað,“ sagði ráðherra í framsöguræðu sinni.