
Hraun flæðir yfir Grindavíkurveg og hætta á að heitt vatn fari af Suðurnesjum
Hraunelfur frá eldgosinu sem hófst við Sundhnúka í morgun náði fyrir nokkru að rjúfa Grindavíkurveg á móts við afleggjarann að Bláa lóninu. Talið er að hraunstraumurinn nái eftir hádegi að heitavatnsæðinni sem fóðrar Suðurnes, ef ekki verður hægt að verja hana. Hættuástandi hefur því verið lýst yfir og mögulegt að heitt vatn fari af öllum Suðurnesjum.
Meðfylgjandi mynd er af fréttavef Ríkisútvarpsins og tekin þegar hraunið fór yfir þjóðveginn.