
Dregur heldur úr virkni gossins
Samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofu Íslands hefur dregið úr krafti gossins sem hófst í morgun. Nú gýs aðallega á þremur stöðum á gossprungunni sem opnaðist. Þetta svipar til atburðarrásarinnar í gosinu 18. desember þegar virknin færðist á staka gíga nokkrum klukkustundum eftir að gosið hófst. Veðurstofa Íslands vekur athygli á dökkum mekki sem stígur upp um miðbik sprungunnar sem opnaðist í morgun. Líklegt þykir að kvika sé að komast í grunnvatn. Það myndar lítilsháttar sprengivirkni þar sem hvítur gufumökkur blandast við dökkan öskumökk.