
Börnin af Drekadeild komu færandi hendi með þetta flotta listaverk sem þau bjuggu til. Ljósm. grundarfjordur.is
Héldu upp á dag leikskólans með bæjarferð
Þann 6. febrúar ár hvert er haldið upp á dag leikskólans um allt land. Á leikskólanum Sólvöllum í Grundarfirði var haldið upp á daginn með því að leikskólabörn fóru í valin fyrirtæki í bænum með gjafir. Ugludeild og hluti af Músadeild fóru með listaverk í Ragnar og Ásgeir og Guðmund Runólfsson hf. og Drekadeild fór með listaverk á heilsugæsluna og á bæjarskrifstofuna. Eftir kaffitímann var nemendum boðið upp á ís í tilefni dagsins. Þetta kemur fram á heimasíðu Grundarfjarðarbæjar.