Frá Stykkishólmi. Ljósm. vaks

Slökkvilið Stykkishólms býður til afmælisveislu

Laugardaginn 10. febrúar næstkomandi verða liðin 110 ár síðan stofnað var formlegt slökkvilið í Stykkishólmi en reglugerð um slökkvilið var sett þann dag árið 1914. Fyrsta brunadælan kom í Stykkishólm haustið 1913 og er hún enn til og varðveitt af slökkviliðinu. Fyrsta samþykkt um brunavarnir er nokkuð eldri eða frá 22. febrúar 1881 en hún náði einkum til þess að sjá til þess að reykháfar væru hreinsaðir eða sótaðir tvisvar á ári.

Slökkvilið Stykkishólms býður til afmælisveislu - Skessuhorn