Myndlistarsýning opnuð í Safnahúsi á morgun

Á morgun, fimmtudaginn 8. febrúar klukkan 16-18, verður í Safnahúsi Borgarfjarðar í Borgarnesi opnuð sýningin „Á móti straumnum.“ Á sýningunni í Hallsteinssal verða verk eftir 12 íslenskar listakonur; þar á meðal Nínu Tryggvadóttur, Gerði Helgadóttur og Ásgerði Búadóttur. Listakonurnar eiga það sammerkt að hafa þurft að synda á móti straumnum í listaheimi þar sem karlar voru við völd og ákváðu hvað væri þessi virði að hampa. „Á sýningunni er líka aðeins fjallað um bylgjur femínisma í listaheiminum og minnir okkur á þær hindranir sem búið er að yfirstíga en að björninn sé ekki enn ekki unninn og við þurfum sífellt að vera á tánum til að koma í veg fyrir misrétti hvar sem er,“ segir í tilkynningu.

Myndlistarsýning opnuð í Safnahúsi á morgun - Skessuhorn