Hótel Hamar er við golfvöllinn á Hamri.

Eldur í tæknirými á Hótel Hamri í morgun og rýma þurfti hótelið

Klukkan 5:26 í morgun var allur tiltækur mannskapur hjá Slökkviliði Borgarbyggðar í Borgarnesi kallaðar út að Hótel Hamri. Þar var eldur laus í rafmagnstöflu í tæknirými á hótelinu. Að sögn Heiðars Arnar Jónssonar slökkviliðsstjóra var um mikinn viðbúnað að ræða enda gestir í öllum herbergjum á hótelinu. Rýming þess gekk þó hratt og vel.

Eldur í tæknirými á Hótel Hamri í morgun og rýma þurfti hótelið - Skessuhorn