Bjarki Þór Grönfeldt. Ljósm. úr safni Skessuhorns

Bjarki aðstoðar Guðmund Inga

Dr. Bjarki Þór Grönfeldt frá Brekku í Norðurárdal hefur verið ráðinn aðstoðarmaður Guðmundar Inga Guðbrandssonar, félags- og vinnumarkaðsráðherra, frá Brúarlandi á Mýrum. Í tilkynningu á vef Stjórnarráðsins segir að meðfram doktorsnámi í Kent á Englandi hafi Bjarki kennt sálfræði og tölfræði á bæði grunn- og meistarastigi. Frá lokum doktorsprófs hafi Bjarki starfað við kennslu og rannsóknir við Háskólann á Bifröst en mun fara í leyfi á meðan hann gegnir starfi aðstoðarmanns.

Bjarki aðstoðar Guðmund Inga - Skessuhorn