Fréttir

true

Góð stund á Morgunstund í Brekkubæjarskóla – Myndasyrpa

Morgunstund var haldin í Brekkubæjarskóla á Akranesi í morgun. Þar voru á boðstólnum atriði frá nemendum skólans og stóðu þeir sig allir með miklum sóma. Þá voru veittar viðurkenningar til nemenda úr öllum bekkjum sem iðka góðar dyggðir eins og metnað, vinnusemi, þrautseigju, dugnað, jákvæðni og vináttu. Morgunstundin fór fram í íþróttahúsinu við Vesturgötu og…Lesa meira

true

Strandveiðifélag Íslands er nú ársgamalt

Aðalfundur Strandveiðifélags Íslands var haldinn sunnudaginn 5. mars síðastliðinn á eins árs afmæli félagsins. Í félaginu eru nú um 300 manns. Ágæt mæting var á þennan fyrsta aðalfund. „Tilgangur Strandveiðifélags Íslands er að standa vörð um og berjast fyrir rétti almennings til handfæraveiða við Íslandsstrendur og koma í veg fyrir mismunun í lögum um fiskveiðistjórnun…Lesa meira

true

Snerting með sögusvið á svæðinu

Nýverið fóru í Stykkishólmi fram upptökur fyrir kvikmyndina Snertingu eftir samnefndri bók Ólafs Jóhanns Ólafssonar. Snerting kom út árið 2020, hlaut mikið lof gagnrýnenda og var mest selda bók þess árs. Á vef Sveitarfélagsins Stykkishólms var greint frá því að kvikmyndað hafi verið við Skólastíg 8 og þurfti því að loka Skólastígnum fyrir umferð um…Lesa meira

true

Vill fá sem mest út úr skiptinemaárinu

Mirco Minicucci er ítalskur skiptinemi sem hefur í vetur dvalið hjá fjölskyldu í Búðardal. Hann er uppalinn í úthverfi Rómar, er á sautjánda ári og gengur nú í Auðarskóla í Búðardal. Mirco er félagslyndur, hefur náð vel til skólasystkina sinna og er duglegur að taka þátt í hverju því sem í boði er í samfélaginu.…Lesa meira

true

„Margir skemmtilegir karakterar í skákinni“

Rætt við Sigurð Ómar Scheving skákáhugamann í Snæfellsbæ Félagar í Taflfélagi Snæfellsbæjar hafa frá því í september á síðasta ári hist vikulega og teflt af miklum móð. Hafa þeir einnig verið duglegir að auglýsa félagið á facebook síðu taflfélagsins. Þar er við stjórnvölinn formaðurinn og skemmtikrafturinn Sigurður Ómar Scheving sem fer aldeilis á kostum. Skessuhorn…Lesa meira

true

Eyjaféð sótt og fjárstofn frístundabænda sónaður – myndasyrpa

Í liðinni viku var mikið umleikis hjá frístundabændum í Stykkishólmi. Á sunnudeginum var rígvænu fé Lárusar Franz Hallfreðssonar smalað í Sellóni og siglt með það í land. Sellón er eyja skammt undan Ögri við Stykkishólm þar sem Lárus Franz beitir fé sínu á veturnar og hrútur að sjálfsögðu hafður með ánum til dægrastyttingar. Hafa menn…Lesa meira

true

Íbúum á Vesturlandi fjölgaði um eitt prósent á fimmtán mánuðum

Á fimmtán mánaða tímabili, frá 1. desember 2022 til 1. mars 2023, fjölgaði íbúum á Vesturlandi um 174, en það jafngildir 1% fjölgun. Hlutfallslega fjölgaði íbúum í Skorradalshreppi mest, eða um þrjá íbúa, en í fjölda talið var langmest fjölgun í Borgarbyggð, eða um 5,2% sem skýrist af að 103 fleiri búa þar en í…Lesa meira

true

Bílaumboðið Askja fyrirhugar starfsemi á Akranesi

Akraneskaupstaður og Bílaumboðið Askja hafa undirritað samning um lóðir í Grænum iðngörðum í Flóahverfi á Akranesi. Með samningnum tryggir Askja sér aðgang að lóðum sem eru yfir 14 þúsund fermetrar að flatarmáli og getur nú hannað húsnæði í takt við þá þjónustustarfsemi sem fyrirhuguð er á vegum fyrirtækisins á svæðinu. Áætluð starfsemi á lóðunum verður…Lesa meira

true

Þriðji sigur Snæfells í röð

Snæfell mætti liði Hamars/Þór í 1. deild kvenna á laugardaginn og fór viðureignin fram í Stykkishólmi. Það var hart barist frá fyrstu mínútu í leiknum og allt til enda. Í fyrsta leikhluta voru Snæfellskonur sterkari og voru með átta stiga forskot, 30:22, þegar honum lauk. Gestirnir komu til baka í öðrum leikhluta og náðu fimm…Lesa meira