
Nemendur í 1. bekk sungu lagið Ég er vinur þinn. Ljósm. vaks
Góð stund á Morgunstund í Brekkubæjarskóla – Myndasyrpa
Morgunstund var haldin í Brekkubæjarskóla á Akranesi í morgun. Þar voru á boðstólnum atriði frá nemendum skólans og stóðu þeir sig allir með miklum sóma. Þá voru veittar viðurkenningar til nemenda úr öllum bekkjum sem iðka góðar dyggðir eins og metnað, vinnusemi, þrautseigju, dugnað, jákvæðni og vináttu.