Fréttir

true

Starfsfólk FVA fór í fjallgönguferð

Í áreiti hversdagsins er svo hollt og gott að kúpla sig aðeins út, helst vera netlaus og jafnvel símasambandslaus í nokkra daga og bara njóta náttúrunnar í góðum félagsskap. Heilsueflingarteymi Fjölbrautaskóla Vesturlands hefur því undanfarin þrjú ár staðið fyrir sumarferð starfsfólks skólans á skemmtilegar gönguslóðir. Tvisvar hefur leiðin legið á Hornstrandir (Hlöðuvík 2021 og Reykjarfjörð…Lesa meira

true

Sigurðar Þórólfssonar minnst

Sigurður Þórólfsson fæddist í Innri-Fagradal í Dölum 11. nóvember 1932. Hann lést á Silfurtúni í Búðardal sunnudaginn 20. ágúst 2023. Sigurður kvæntist 11. júní 1962 eftirlifandi eiginkonu sinni, Erlu Karlsdóttur frá Kollsá í Hrútafirði, f. 24. júní 1939. Synir þeirra eru Þórólfur, Karl, Ingimar og Guðjón Torfi. Sigurður var alla sína starfsævi bóndi í Innri-Fagradal.…Lesa meira

true

Greta María í yfirheyrslu vikunnar

“Ég sakna mest þegar ég var ung, bjartsýn og áhyggjulaus,” segir Greta María Árnadóttir í Stykkishólmi sem er gestur í yfirheyrslu vikunnar í Skessuhorni að þessu sinni: Nafn: Greta María Árnadóttir Hvar ertu fædd og hvenær? Ég fæddist á Landspítalanum á jóladag árið 1985, við bjuggum þá á Leifsgötu í Reykjavík. Hvernig myndir þú lýsa…Lesa meira

true

Gekk hringinn í kringum Ísland í ágúst

Kristian Kārkliņš gekk hringinn í kringum Ísland á 29 dögum dagana 3.-31. ágúst. Hann gekk að meðaltali yfir 50 km á dag en tók einn hvíldardag á leiðinni. ,,Ég er mikill göngugarpur en síðasta haust gekk ég Trail du Mont Blanc sem er 180 km löng leið á þremur dögum með 10 km hækkun. Metið…Lesa meira

true

Góð aflabrögð í upphafi veiðitímabils – myndir

Mjög góð aflabrögð voru á mánudaginn hjá bátum í Snæfellsbæ og sjómenn kátir með daginn, en eins og þeir segja: „Það er nóg af fiski hérna á heimaslóðum.“ Línubátarnir Örvar SH og Tjaldur SH lönduðu á mánudagsmorgun um 95 tonnum hvor og einnig var góður afli hjá dragnótarbátum bæði frá Rifi og Ólafsvík, þar sem…Lesa meira

true

„Erum mjög öflug í fræðasamfélaginu“

Um fjögur hundruð nemendur stunda nú nám við Landbúnaðarháskóla Íslands Landbúnaðarháskóli Íslands býður upp á nám á framhaldsskólastigi og háskólastigi. Aðalstarfsstöðin er á Hvanneyri í Borgarfirði en einnig er starfsstöð á Keldnaholti í Reykjavík. Nám við skólann er tilvalið fyrir þau sem hafa áhuga á náttúru Íslands, umhverfismálum, skipulagi, sjálfbærni, búvísindum og matvælaframleiðslu. Sérsvið skólans…Lesa meira

true

Hafa lokið síðustu hestaferðinni eftir 37 ár í bransanum

Rætt við hjónin Sigurð Jóhannsson og Ólöfu Önnu Guðbrandsdóttur á Stóra-Kálfalæk Hjónin Sigurður Jóhannsson og Ólöf Anna Guðbrandsdóttir eru bæði af Mýrunum. Sigurður er alinn upp á Stóra-Kálfalæk en Ólöf á Álftá. Þau byrjuðu að búa saman á Kálfalæk árið 1975 og eiga tvær dætur, Unni og Bjargeyju, en Unnur býr ásamt eigimanni sínum og…Lesa meira

true

Góð skráning á opið íþróttamót Dreyra

Opið íþróttamót Dreyra og Íslandsbanka fór fram helgina 18.-20. ágúst á Æðarodda á Akranesi. Keppt var í tölti, fjórgangi og fimmgangi í öllum aldursflokkum. Góð skráning var á mótið en þær voru alls 130. Á mótið mættu fulltrúar frá öllum hestamannafélögum á Vesturlandi auk keppenda frá nokkrum hestamannafélögum á höfuðborgarsvæðinu.Lesa meira

true

Ökumenn beðnir að lækka hraðann á framkvæmdasvæðum

Í dag eru starfsmenn Vegagerðarinnar að skipta út og lagfæra allar vegastikur við Akrafjallsveg, norðan Akrafjalls. Einar Örn Einarsson starfsmaður Vegagerðarinnar segir í samtali við Skessuhorn að áberandi sé að ökumenn sýni aðstæðum ekki næga tillitsemi. „Sumir ökumenn jafnvel auka hraðann þegar þeir fara framhjá okkur, í stað þess að hægja á ferðinni. Því fylgir…Lesa meira

true

„Svo vinnist þér á morgun það sem vannst ei mér í dag“ – frásögn og myndasyrpa

Fjölmennt málþing á Hvanneyri til heiðurs Bjarna Guðmundssyni Síðastliðinn fimmtudag var hvert bílastæði skipað við aðalbyggingu Landbúnaðarháskóla Íslands á Hvanneyri. Tilefnið var málþing til heiðurs prófessors dr. Bjarna Guðmundssyni sem nýverið fagnaði 80 ára afmæli sínu. Var það haldið af Landbúnaðarsafni Íslands í samvinnu við Landbúnaðarháskólann. Málþingið hófst kl. 13 og var eins og vænta…Lesa meira