
Hluti hópsins í Landmannalaugum. Háalda í baksýn. Ljósm. aðsendar
Starfsfólk FVA fór í fjallgönguferð
Í áreiti hversdagsins er svo hollt og gott að kúpla sig aðeins út, helst vera netlaus og jafnvel símasambandslaus í nokkra daga og bara njóta náttúrunnar í góðum félagsskap. Heilsueflingarteymi Fjölbrautaskóla Vesturlands hefur því undanfarin þrjú ár staðið fyrir sumarferð starfsfólks skólans á skemmtilegar gönguslóðir. Tvisvar hefur leiðin legið á Hornstrandir (Hlöðuvík 2021 og Reykjarfjörð nyrðri 2022) og í ágúst síðastliðnum var farið í Landmannahelli þar sem starfsfólk og viðhengi áttu dásamlega daga fyrir skólabyrjun.