
Um klukkan 14 í gær varð harður árekstur tveggja bíla í Norðurárdal í Borgarfirði. Fjölmennt lið viðbragðsaðila fór á staðinn, meðal annars slökkvilið því beita þurfti klippum á annan bílinn til að losa um farþega. Þá mættu tvær þyrlur Landhelgisgæslunnar á vettvang og fluttu slasaða á sjúkrahús. Önnur þyrlanna hafði verið á æfingaflugi skammt frá…Lesa meira







