Frá framkvæmdum á þriðju hæð. Ljósm. Grundaskóli

Framkvæmdir hafnar á þriðju hæð Grundaskóla

Verktakar vinna nú af krafti að uppbyggingu Grundaskóla á Akranesi og eru framkvæmdir nú hafnar á þriðju hæðinni. Brátt munu útlínur á nýjum Grundaskóla koma í ljós. Burðarbitar rísa nú hver af öðrum og iðnaðarmenn leggja mikinn metnað í verkið. „Það gleður að sjá marga fyrrum nemendur Grundaskóla koma að verkefninu og sinna því af mikilli fagmennsku,“ segir í frétt á FB síðu Grundaskóla.

Framkvæmdir hafnar á þriðju hæð Grundaskóla - Skessuhorn