Vegi lokað vegna umferðarslyss í Norðurárdal

Á umferdin.is er sagt að hringvegur 1 er nú lokaður í Norðurárdal á móts við Hvamm, vegna umferðaróhapps sem varð þar eftir klukkan 14. Vegagerðin bendir vegfarendum á hjáleið um Norðurárdalsveg 528, en sá vegur er malarvegur og nauðsynlegt að aka með varúð. Samkvæmt heimildum Skessuhorns varð harður árekstur tveggja bíla og eru viðbragðsaðilar á leiðinni á vettvang.

Uppfært kl. 15:08: Tvær þyrlur Landhelgisgæslunnar voru sendar á vettvang samkvæmt heimildum sjónarvotta.

Uppfært kl. 15:19: Samkvæmt lögreglu má búast við að vegurinn verði lokaður næstu tvo klukkutímana.

Vegi lokað vegna umferðarslyss í Norðurárdal - Skessuhorn