Landað úr Gunnari Bjarnasyni SH í Ólafsvík. Ljósmyndir: af

Góð aflabrögð í upphafi veiðitímabils – myndir

Mjög góð aflabrögð voru á mánudaginn hjá bátum í Snæfellsbæ og sjómenn kátir með daginn, en eins og þeir segja: „Það er nóg af fiski hérna á heimaslóðum.“ Línubátarnir Örvar SH og Tjaldur SH lönduðu á mánudagsmorgun um 95 tonnum hvor og einnig var góður afli hjá dragnótarbátum bæði frá Rifi og Ólafsvík, þar sem mikið líf var á bryggjunum eftir rólegt sumar. Menn voru í óða önn að landa aflanum og var ekki annað að sjá en menn væru í sínu besta skapi eftir daginn.

Góð aflabrögð í upphafi veiðitímabils - myndir - Skessuhorn