Sigurðar Þórólfssonar minnst

Sigurður Þórólfsson fæddist í Innri-Fagradal í Dölum 11. nóvember 1932. Hann lést á Silfurtúni í Búðardal sunnudaginn 20. ágúst 2023. Sigurður kvæntist 11. júní 1962 eftirlifandi eiginkonu sinni, Erlu Karlsdóttur frá Kollsá í Hrútafirði, f. 24. júní 1939. Synir þeirra eru Þórólfur, Karl, Ingimar og Guðjón Torfi. Sigurður var alla sína starfsævi bóndi í Innri-Fagradal. Hann lauk landsprófi frá Laugarvatni, varð búfræðingur frá Hólum og stundaði nám einn vetur í félagsmálaskóla landbúnaðarins í Sånga-Säby í Svíþjóð. Hann tók formlega við búi 1962 og var lengst af með sauðfjárbú þar til hann lét af búskap 2012.