Fréttir

true

Jarðvegsgrindur í göngustíg fuku

Í vestan hvassviðrinu samhliða mjög hárri sjávarstöðu á laugardaginn, eyðilagðist nýlegur sjávar-göngustígur við Borgarvog, framan við Kveldúlfsgötu í Borgarnesi. Stígurinn er lagður með svokölluðum Ecoraster jarðvegsgrindum sem fyllt er í með fínni möl. Í atganginum fauk fína efnið burt og grindurnar losnuðu upp eins og sjá má á meðfylgjandi myndum.Lesa meira

true

Framkvæmdir víða í Snæfellsbæ – myndir

Í Snæfellsbæ á sér stað töluverð uppbygging um þessar mundir og víða má sjá framtakssemi og greina sóknarhug meðal íbúa og annarra sem sjá tækifæri í því að reisa byggingar í sveitarfélaginu. Þetta kemur fram á FB síðu Snæfellsbæjar. Í viðtali við Kristinn Jónasson á Bylgjunni undir lok síðustu viku mátti greina mikla bjartsýni bæjarstjórans…Lesa meira

true

Kári með frábæran sigur á toppliði Reynis í markaleik

Kári og Reynir Sandgerði áttust við í 3. deild karla í knattspyrnu á föstudagskvöldið og var leikurinn í Akraneshöllinni í skjóli fyrir óveðrinu sem geisaði úti. Gestirnir komust yfir strax á þriðju mínútu með marki frá Julio Cesar Fernandes en Hektor Bergmann Garðarsson jafnaði metin fyrir Kára um miðjan hálfeikinn þegar hann fékk boltann eftir…Lesa meira

true

Lánshæfi ríkissjóðs metið stöðugt og fær A

Matsfyrirtækið Fitch Ratings hefur birt mat á lánshæfi ríkissjóðs. Lánshæfiseinkunn er óbreytt í A og horfur eru sagðar stöðugar. Í fréttatilkynningu Fitch segir að A lánshæfiseinkunn ríkissjóðs endurspegli miklar tekjur á mann og góða stjórnarhætti sem eru sambærilegri við lönd með AAA og AA lánshæfiseinkunn. Ísland hefur byggt upp umtalsverðan viðnámsþrótt sem dregur úr næmni…Lesa meira

true

Borgfirðingar höfðu betur í lokaviðureign púttkeppni sumarsins

Síðasta púttkeppni sumarsins hjá eldri borgurum á Akranesi og í Borgarbyggð fór fram að Hamri í Borgarnesi fimmtudaginn 31. ágúst. Keppnin átti upphaflega að fara fram 10. ágúst en var frestuð vegna fráfalls Þorvaldar Valgarðssonar, formanns íþróttanefndar Feban. Veður var mjög gott á úrslitadaginn þegar 55 keppendur mættu til leiks. Fyrir mótið voru Akurnesingar með…Lesa meira

true

Rekið heim úr fyrstu réttum haustsins

Í gær var réttað í Nesmelsrétt í Hvítársíðu sem jafnframt er fyrsta réttin á lista margra sem framundan eru á Vesturlandi í haust. Í réttina er rekið fé af Síðufjalli sem smalað er sama dag. Fjallið er smalað til að létta á þeim fjárfjölda sem annars væri rekinn til Þverárréttar sem verður næstkomandi sunnudag og…Lesa meira

true

Séra Aðalsteinn Þorvaldsson kvaddur

Í dag, sunnudaginn 3. september, var kveðjumessa í Grundarfjarðarkirkju þar sem séra Aðalsteinn Þorvaldsson kvaddi söfnuðinn eftir 15 ára þjónustu. Séra Aðalsteinn og Lína Hrönn Þorkelsdóttir, eiginkona hans, eru nú að flytjast búferlum til Akureyrar þar sem hann hefur störf sem sóknarprestur. Eftir messuna var kaffisamsæti í Samkomuhúsi Grundarfjarðar þar sem þeim hjónum var þakkað…Lesa meira

true

Skagamenn einir á toppnum eftir sigur á Þór

Eftir að hafa tapað fyrir Fjölni í byrjun júní á heimavelli hafa Skagamenn unnið sigur í tólf leikjum af síðustu fimmtán í Lengjudeild karla í knattspyrnu, gert tvö jafntefli og aðeins tapað einum leik. Á tímabili virtist lið Aftureldingar á leið beint upp í Bestu deildina og eftir 9-0 sigur liðsins á liði Selfoss 21.…Lesa meira

true

Loka þurfti veginum um Innra Klif um tíma

Mikið óveður gekk yfir Snæfellsnes í gærkvöldi samhliða óvenjulega hárri sjávarstöðu. Nýlega hækkaður sjóvarnargarður rétt innan við félagsheimilið Klif í Ólafsvík hélt ekki gegn ágangi sjávar eins og áætlanir höfðu gert ráð fyrir og þurfi að loka veginum tímabundið fyrir umferð á meðan hreinsa varð með gröfu grjót sem borist hafði á land. Sjórinn gekk…Lesa meira

true

Hvalbátarnir bíða betra veðurs

Hvalveiðar voru í síðustu viku heimilar að nýju eftir að matvælaráðherra ákvað að framlengja ekki tímabundið bann sem sett var frá 20. júní til 31. ágúst. Því mátti hefja veiðar á föstudaginn, en þann dag kom fyrsta haustlægðin yfir landið og því útilokað að halda til veiða. Meðfylgjandi mynd var tekin síðdegis í gær af…Lesa meira