
Rekið heim úr fyrstu réttum haustsins
Í gær var réttað í Nesmelsrétt í Hvítársíðu sem jafnframt er fyrsta réttin á lista margra sem framundan eru á Vesturlandi í haust. Í réttina er rekið fé af Síðufjalli sem smalað er sama dag. Fjallið er smalað til að létta á þeim fjárfjölda sem annars væri rekinn til Þverárréttar sem verður næstkomandi sunnudag og mánudag. Féð í Nesmelsrétt var því sem fyrr að stærstum hluta frá þremur bæjum; Sámsstöðum og Bjarnastöðum í Hvítársíðu auk Ásbjarnarstaða í Stafholtstungum. Meðfylgjandi mynd birti Þuríður Guðmundsdóttir á Sámsstöðum á FB síðu sinni þegar hún og hennar fólk var á heimleið með reksturinn.
Skessuhorn hvetur bændur og búalið til að senda ritstjórn myndir úr leitum og réttum haustsins. Minnum á netfangið: skessuhorn@skessuhorn.is