Fréttir

true

Fjölmenni á iðnaðarsýningu í Laugardalshöll

Frá fimmtudegi til laugardags í liðinni viku fór fram Iðnaðarsýningin 2023 í Laugardalshöll í Reykjavík. Áherslusvið sýningarinnar voru mannvirki, orka, innviðir, hönnun, framleiðsla og vistvænar lausnir. Um áttatíu sýningaraðilar tóku þátt og mátti sjá ýmsar nýjungar í þróun og tækni, ásamt því sem mörg stoðfyrirtæki kynntu starfsemina. Samkvæmt opinberum hagtölum skapar iðnaður með beinum hætti…Lesa meira

true

Þang- og þarasláttur í Vatnsfirði

Í síðustu viku var unnið við þangslátt í Vatnsfirði á Barðaströnd. Þarna eru á ferðinni sláttuprammar frá Þörungaverksmiðjunni á Reykhólum. Verksmiðjan sækist eftir klórþangi sem vex á klöppum og skerjum en utar er það hrossaþarinn sem er sleginn þegar komið er fram á haustið. Siglt er með þang og þara á Gretti til Reykhóla þar…Lesa meira

true

Mikill fjöldi var á tjaldsvæðinu á Akranesi í sumar

Tjaldsvæðið á Akranesi er staðsett ofan við sandfjöruna í Kalmansvík. Af tjaldsvæðinu er fallegt útsýni yfir á Snæfellsnes þar sem jökullinn skartar sínu fegursta á góðviðrisdögum. Frá tjaldsvæðinu eru skemmtilegar gönguleiðir, meðal annars með ströndinni að Elínarhöfða og Höfðavík. Á svæðinu er góð aðstaða fyrir fólk á ferðalagi hvort sem það ferðast með húsvagna eða…Lesa meira

true

Stefnt að því að pör og fjölskyldufólk flytji á Hótel Glym

Upplýsingafundur um komu umsækjenda um alþjóðlega vernd í Hvalfjarðarsveit Vinnumálastofnun boðaði íbúa í Hvalfjarðarsveit til opins upplýsingafundar síðdegis í dag á Hótel Glymi. Þar var kynnt fyrirhugað úrræði fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd en eins og fram hefur komið hefur ríkið einmitt tekið Hótel Glym á leigu til allt að tveggja ára frá 1. október…Lesa meira

true

Kór Akraneskirkju er að hefja vetrarstarfið

Kór Akraneskirkju er um þessar mundir að hefja vetrarstarfið eftir sumarfrí. Síðastliðinn sunnudag söng kórinn í útvarpsmessu frá Akraneskirkju og flutti meðal annars sálma úr nýútgefinni sálmabók Þjóðkirkjunnar.  Einsöngvarar með kórnum voru Björg Þórhallsdóttir, Halldór Hallgrímsson og Katrín Valdís Hjartardóttir. Löng hefð er fyrir öflugu kórstarfi við Akraneskirkju. Aðalhlutverk kórsins er að syngja við guðsþjónustur…Lesa meira

true

Víkingur Ó. vann góðan sigur á KF og á enn möguleika

Víkingur Ólafsvík tók á móti liði KF úr Fjallabyggð í 2. deild karla í knattspyrnu í gær og var leikurinn á gervigrasvellinum í Ólafsvík. Björn Axel Guðjónsson skoraði fyrsta mark leiksins og sitt ellefta mark í sumar fyrir Víking á 24. mínútu og staðan 1-0 Víkingi í vil í hálfleik. Luke Williams kom Víkingi í…Lesa meira

true

Skagakonur komnar í góða stöðu eftir sigur á KH

Það var nokkuð ljóst snemma leiks í leik ÍA og KH í 2. deild kvenna í knattspyrnu, sem fram fór í Akraneshöllinni á laugardaginn, að heimakonur ætluðu sér sigur því þær fengu strax nokkur færi án þess þó að ná að nýta þau. ÍA varð fyrir áfalli á 21. mínútu þegar hin leikreynda Unnur Ýr…Lesa meira

true

Afla stuðnings til ráðningar starfsmanns Almannavarnanefndar

Nú er stefnt að því að almannavarnir í öllum landshlutum ráði starfsmann, einn í hverjum landshluta. Hlutverk þeirra verður að halda utan um starfsemi almannavarnanefnda, gera viðbragðsáætlanir, sinna aðgerðastjórnun, samræma hættumat, kanna áfallaþol, standa fyrir æfingum og fjölmargt fleira. Stefnt er að því að starf verkefnastjóra verði skilgreint án staðsetningar með færanlega vinnustöð. Í minnisblaði…Lesa meira

true

Bílaverkstæði Hjalta skiptir um eigendur

Snókur eignarhaldsfélag ehf. hefur keypt allt hlutafé í Bílaverkstæði Hjalta ehf. á Akranesi af hjónunum Hjalta Njálssyni og Valdísi Þóru Valdimarsdóttur. Skrifað var undir kaupsamning síðastliðinn föstudag og hafa eigendaskiptin þegar átt sér stað. Bílaverkstæði Hjalta var stofnað árið 1984 af hjónunum Hjalta og Valdísi og þjónustar Akurnesinga og Vestlendinga alla. Fyrirtækið er þjónustuaðili BL…Lesa meira

true

Líf og fjör í upphafi vertíðar

Mikið líf var á höfninni í Rifi eldsnemma í morgun þegar línubátarnir Tjaldur SH og Örvar SH komu í land. Strax var byrjað að landa aflanum úr bátunum. Nokkrir bátar eru á sjó í dag á nýju kvótaári en veðurspá er hins vegar ekki góð eftir hádegi í dag og fram á miðvikudag.Lesa meira