
Kórfélagar á heimavelli.
Kór Akraneskirkju er að hefja vetrarstarfið
Kór Akraneskirkju er um þessar mundir að hefja vetrarstarfið eftir sumarfrí. Síðastliðinn sunnudag söng kórinn í útvarpsmessu frá Akraneskirkju og flutti meðal annars sálma úr nýútgefinni sálmabók Þjóðkirkjunnar. Einsöngvarar með kórnum voru Björg Þórhallsdóttir, Halldór Hallgrímsson og Katrín Valdís Hjartardóttir.