Þjónustuhúsið og snyrtiaðstaðan. Ljósmyndir: vaks

Mikill fjöldi var á tjaldsvæðinu á Akranesi í sumar

Tjaldsvæðið á Akranesi er staðsett ofan við sandfjöruna í Kalmansvík. Af tjaldsvæðinu er fallegt útsýni yfir á Snæfellsnes þar sem jökullinn skartar sínu fegursta á góðviðrisdögum. Frá tjaldsvæðinu eru skemmtilegar gönguleiðir, meðal annars með ströndinni að Elínarhöfða og Höfðavík. Á svæðinu er góð aðstaða fyrir fólk á ferðalagi hvort sem það ferðast með húsvagna eða tjöld. Blaðamaður Skessuhorns kíkti við á tjaldsvæðinu í góða veðrinu nýverið og hitti þar að máli Guðnýju Margréti Ingvadóttur sem hefur séð ásamt tveimur dætrum sínum, þeim Hörpu og Sigurrós, um tjaldsvæðið í sumar. Þær skipta þessu á milli sín, vinna einn dag og svo eru tveir dagar í frí á móti. Þær vinna frá níu til ellefu á morgnana og frá hálf sjö til tíu á kvöldin. Svo þegar meira er um að vera þá eru þær lengur og eins og þarf yfir daginn.

Mikill fjöldi var á tjaldsvæðinu á Akranesi í sumar - Skessuhorn