Tveir af sláttuprömmunum að verki. Ljósmyndir: ga

Þang- og þarasláttur í Vatnsfirði

Í síðustu viku var unnið við þangslátt í Vatnsfirði á Barðaströnd. Þarna eru á ferðinni sláttuprammar frá Þörungaverksmiðjunni á Reykhólum. Verksmiðjan sækist eftir klórþangi sem vex á klöppum og skerjum en utar er það hrossaþarinn sem er sleginn þegar komið er fram á haustið. Siglt er með þang og þara á Gretti til Reykhóla þar sem í verksmiðjunni er unnið úr hráefninu ýmis efni til matargerðar og fóðrunar gripa, en einnig í snyrtivörur.

Þang- og þarasláttur í Vatnsfirði - Skessuhorn