
Svipmynd frá sýningunni á laugardaginn. Ljósmyndir: ki
Fjölmenni á iðnaðarsýningu í Laugardalshöll
Frá fimmtudegi til laugardags í liðinni viku fór fram Iðnaðarsýningin 2023 í Laugardalshöll í Reykjavík. Áherslusvið sýningarinnar voru mannvirki, orka, innviðir, hönnun, framleiðsla og vistvænar lausnir. Um áttatíu sýningaraðilar tóku þátt og mátti sjá ýmsar nýjungar í þróun og tækni, ásamt því sem mörg stoðfyrirtæki kynntu starfsemina.