Sóknarnefnd afhenti þeim veglega kveðjugjöf. F.v. Aðalsteinn Jósepsson, Ásthildur Kristjánsdóttir, Lilja Magnúsdóttir, Aðalsteinn Þorvaldsson, Lína Hrönn Þorkelsdóttir, Einar Sveinn Ólafsson, Sigurborg Kr Hannesdóttir, Helena María Jónsdóttir Stolzenwald og Olga Sædós Einarsdóttir. Ljósmyndir: tfk

Séra Aðalsteinn Þorvaldsson kvaddur

Í dag, sunnudaginn 3. september, var kveðjumessa í Grundarfjarðarkirkju þar sem séra Aðalsteinn Þorvaldsson kvaddi söfnuðinn eftir 15 ára þjónustu. Séra Aðalsteinn og Lína Hrönn Þorkelsdóttir, eiginkona hans, eru nú að flytjast búferlum til Akureyrar þar sem hann hefur störf sem sóknarprestur.