Gamall olíutankur á Rifi verður að heimili. Ljósmyndir: Heimir Berg Vilhjálmsson

Framkvæmdir víða í Snæfellsbæ – myndir

Í Snæfellsbæ á sér stað töluverð uppbygging um þessar mundir og víða má sjá framtakssemi og greina sóknarhug meðal íbúa og annarra sem sjá tækifæri í því að reisa byggingar í sveitarfélaginu. Þetta kemur fram á FB síðu Snæfellsbæjar. Í viðtali við Kristinn Jónasson á Bylgjunni undir lok síðustu viku mátti greina mikla bjartsýni bæjarstjórans með ástandið, velgengni í sjávarútvegi og ferðaþjónustu nefndi hann sem dæmi. Nú vantaði bara fleiri hús til að rúma það fólk sem vantaði til ýmissa starfa í sveitarfélaginu.

Framkvæmdir víða í Snæfellsbæ - myndir - Skessuhorn