
Grafa frá TS vélaleigu hreinsaði á laugardagskvöldið grjót af þjóðveginum. Ljósmyndir; af
Loka þurfti veginum um Innra Klif um tíma
Mikið óveður gekk yfir Snæfellsnes í gærkvöldi samhliða óvenjulega hárri sjávarstöðu. Nýlega hækkaður sjóvarnargarður rétt innan við félagsheimilið Klif í Ólafsvík hélt ekki gegn ágangi sjávar eins og áætlanir höfðu gert ráð fyrir og þurfi að loka veginum tímabundið fyrir umferð á meðan hreinsa varð með gröfu grjót sem borist hafði á land. Sjórinn gekk alveg upp að húsi TS vélaleigu við Innra Klif. Þá skemmdist einn bíll sem stóð á bílaplani Hraðfrystihúss Hellissands í Rifi, þegar laust fiskikar tókst á loft og hafnaði á bílnum. Ekki er að svo stöddu vitað um frekara tjón. Nú er veðrið gengið niður í Snæfellsbæ.