Fréttir

true

Ný hugsun í hönnun hafna

Ákall um bætt umferðaröryggi við höfnina í Stykkishólmi Á fundi bæjarstjórnar Sveitarfélagsins Stykkishólms í lok júní síðastliðins voru lögð fram gögn í tengslum við fyrirhugaðan hafnarstíg í norðurhluta hafnarinnar í Stykkishólmi, við Súgandisey. Fyrir liggur hönnun á slíkum stíg meðfram Baldursbryggju sem er sunnan Súgandiseyjar til að bæta umferðaröryggi og er það hugsað sem samstarfsverkefni…Lesa meira

true

Ungmennafélagið Hlíðin endurvakið

Ungmennafélagið Hlíðin var starfandi í Þverárhlíð í Borgarfirði um miðja síðustu öld en félagið er talið hafa verið stofnað árið 1942. Stofnendur þess voru sextán talsins en það var hópur bænda frá Kvíum, Hermundarstöðum, Örnólfsdal, Hömrum, Grjóti, Högnastöðum, Norðtungu og Lækjarkoti sem stofnuðu félagið. Ungmennafélagið starfaði í u.þ.b. 35 ár áður en starfsemi þess lognaðist…Lesa meira

true

Tveir ungir Borgfirðingar munu keppa á heimsmeistaramóti íslenska hestsins

Borgfirski knapinn Þorgeir Ólafsson mun keppa á stóðhestinum Goðasteini frá Haukagili í Hvítársíðu á Heimsmeistaramóti íslenska hestsins sem fram mun fara í Hollandi dagana 8.-13. ágúst næstkomandi. Landsliðshópurinn var formlega kynntur fyrir helgi. Þorgeir og Goðasteinn munu keppa í fimmgangi F1, tölti T1 og gæðingaskeiði PP1. Nítján þjóðir eiga fulltrúa á mótinu, en Borgfirðingurinn Máni…Lesa meira

true

Unnið að því að bæta réttarstöðu og húsnæðisöryggi leigjenda

Starfshópur innviðaráðherra, skipaður fulltrúum stjórnvalda og aðilum vinnumarkaðarins, hefur skilað tillögum að víðtækum breytingum á húsaleigulögum til að bæta réttarstöðu og húsnæðisöryggi leigjenda. Starfshópurinn skilaði tillögum sínum til ráðherra í formi draga að frumvarpi um breytingar á húsaleigulögum (nr. 36/1994) sem hafa verið birt í samráðsgátt stjórnvalda. Hægt er að senda inn umsögn eða ábendingar til…Lesa meira

true

Lýsir eftir eiganda bólfæris sem fannst utan við Straumfjörð

Svanur Steinarsson hlunnindabóndi í Straumfirði á Mýrum sendi Skessuhorni línu. Hann kveðst hafa verið að koma úr dúntekju þegar hann sá bólfærið á meðfylgjandi myndum fast á skeri utan við Straumfjörð. „Ég er búinn að láta Landhelgisgæsluna vita og er að vona að þetta komist til rétts eiganda þar sem það er örugglega AIS sendir…Lesa meira

true

Haukur Andri fylgir bróður sínum til Lille

Haukur Andri Haraldsson knattspyrnumaður í ÍA er genginn til liðs við Lille í Frakklandi og fylgir því bróður sínum Hákoni Arnari til félagsins, en hann var seldur til félagsins fyrr í vikunni frá FC Kaupmannahöfn fyrir hátt verð. Haukur Andri skrifaði undir samning við Lille til ársins 2026. Haukur, sem er 17 ára gamall, hóf…Lesa meira

true

Viðhald á Snæfellsnesvegi þolir enga bið

Stjórn Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi ræddi samgöngumál á fundi sínum 22. júní síðastliðinn og samþykkti þar ályktun til stjórnvalda um að veita nú þegar fjármunum í viðhaldsverkefni á vegi nr. 54, Snæfellsnesvegi. Tekið var fram að viðhald þar, sérstaklega á 19 km kafla á milli bæjanna Brúarhrauns og Dalsmynnis, þyldi enga bið. Þar með var…Lesa meira

true

Víkingur Ólafsvík og Kári í 8-liða úrslit í fotbolta.net mótinu

Lið Víkings frá Ólafsvík og Kára frá Akranesi tryggðu sér í gærkvöldi sæti í 8-liða úrslitum í fótbolta.net mótinu. Víkingur sigraði Magna frá Grenivík 2:1 í leik sem fram fór nyrðra og Kári sigraði Elliða 4:1 í leik sem spilaður var í Árbænum. Þeir Kristófer Máni Atlason og Brynjar Vilhjálmsson komu Víkingi í 2:0 í…Lesa meira

true

Átta umferðaróhöpp á einni viku

Aukin umferð hefur að undanförnu leitt til fleiri óhappa og slysa. Alls voru átta umferðaróhöpp tilkynnt til Lögreglunnar á Vesturlandi í liðinni viku. Óhöppin voru allt frá minniháttar árekstrum upp í harðan árekstur við Hítará á Snæfellsnesi þar sem einn lést og fimm slösuðust. Bílveltur voru nokkrar en minniháttar áverkar eða slys urðu á fólki…Lesa meira

true

Flogið um Snæfellsnes – myndasyrpa

Sumarliði Ásgeirsson fréttaritari Skessuhorns í Stykkishólmi fór á stúfana með dróna í góða veðrinu fyrir stuttu og myndaði náttúru og sögustaði á Snæfellsnesi. Á flestum myndanna er jökullinn í baksýn, enda er Snæfellsnes ríki hans. Það getur verið fróðlegt að sjá afraksturinn þegar flygildinu er brugðið á loft því þá sjáum við landið og náttúruna…Lesa meira