
Þorgeir Ólafsson og Goðasteinn frá Haukagili. Ljósm. Hrefna María Ómarsdóttir.
Tveir ungir Borgfirðingar munu keppa á heimsmeistaramóti íslenska hestsins
Borgfirski knapinn Þorgeir Ólafsson mun keppa á stóðhestinum Goðasteini frá Haukagili í Hvítársíðu á Heimsmeistaramóti íslenska hestsins sem fram mun fara í Hollandi dagana 8.-13. ágúst næstkomandi. Landsliðshópurinn var formlega kynntur fyrir helgi. Þorgeir og Goðasteinn munu keppa í fimmgangi F1, tölti T1 og gæðingaskeiði PP1.