Fréttir

true

Áframhaldandi endurbætur á húsnæði Höfða á Akranesi

Að fenginni tillögu stjórnar Framkvæmdasjóðs aldraðra hefur heilbrigðisráðherra ákveðið að veita framlag til endurnýjunar á þakklæðningu, veggjaklæðningu ásamt nýjum endurbættum gluggum í 2. áfanga á Höfða, hjúkrunar- og dvalarheimili á Akranesi. Einnig er fjárveiting til endurnýjunar á þakkanti og flötum þökum í 1. áfanga Höfða. „Með veittu framlagi frá Framkvæmdasjóði aldraðra og framlögum frá eignaraðilum…Lesa meira

true

Oddi kaupir Örvar SH af Hraðfrystihúsi Hellisands

Oddi hf. á Patreksfirði hefur náð samkomulagi við Hraðfrystihús Hellissands um kaup á línuskipinu Örvari SH 777. Skipið mun leysa af Núp BA 69 frá og með næstu áramótum sem gerður hefur verið út á línu frá Odda síðan 1990. Núpur var smíðaður árið 1976 í Póllandi og er 237 rúmlestir að stærð. Hann hefur…Lesa meira

true

Vinnuskólinn tók þátt í undirbúningi Hinsegin hátíðar Vesturlands

Vinnuskólinn á Akranesi var með ýmsa fræðslu í vikunni og tók þátt í undirbúningi fyrir Hinsegin hátíð Vesturlands sem nær hápunkti á morgun, laugardag. Í lok vikunnar var svo slegið upp grillveislu í skógræktinni, og farið í leiki undir nafninu Hinsegin leikanna hjá Vinnuskólanum. Meðfylgjandi myndir tók Jón Arnar Sverrisson garðyrkjustjóri og sendi Skessuhorni.Lesa meira

true

Borgfirsku árnar á toppnum

Á vef Landssambands veiðifélaga eru vikulega teknar saman upplýsingar um laxveiðina. Síðastliðinn miðvikudag voru flestir laxar veiddir í Norðurá, eða 553. Þverá fylgdi fast á eftir með 540 laxa og Urriðafoss í Þjórsá hafði skilað 508 löxum. Í Haffjarðará hafa veiðst 357 laxar sem er mjög góð veiði á sex stangir. Miðað við stangafjölda er…Lesa meira

true

Umferð hleypt á tvöföldun vegar um Kjalarnes

Fyrr í vikunni var umferð hleypt inn á nýjar akgreinar á Kjalarnesi. Um er að ræða 4,1 km vegarkafla frá Varmhólum að Vallá. Í gær var enn verið að vinna við frágang og yfirlögn og formleg opnun hefur ekki farið fram. Engar upplýsingar er að finna á heimasíðu Vegagerðarinnar um opnun vegarins fyrir umferð, en…Lesa meira

true

Mengun frá gosinu berst í dag yfir vestanvert landið

Í dag er spáð hægri suðlægri og suðaustlægri vindátt sem þýðir að mengun frá eldgosinu við Litla-Hrút á Reykjanesi er að berast yfir sunnan- og vestanvert landið. Mest gæti mengunin orðið á Snæfellsnesi, samanber graf Veðurstofunnar hér að neðan.  Meðfylgjandi ljósmynd var tekin á Breiðinni á Akranesi nú rétt í þessu. Á henni sést að…Lesa meira

true

Beint frá býli dagurinn verður 20. ágúst

Sunnudaginn 20. ágúst næstkomandi verða viðburðir haldnir á sex stöðum á landinu þar sem þess verður minnst að fimmtán eru frá því að verkefninu Beint frá býli var hrundið af stað. Dagskrá er enn í mótun á hverjum stað, en þó liggur fyrir að hér á Vesturlandi verður hátíðin haldin á geitfjársetrinu á Háafelli í…Lesa meira

true

Kveiktu varðeld í vinnuskúr

Slökkvilið Akraness og Hvalfjarðarsveitar var í tvígang í gærköldi kallað út vegna reyks frá vinnuskúr sem stendur við hlið leikskólans Garðasels á Akranesi. Talið er börn hafi kveikt varðeld á gólfi skúrsins. Fyrra útkallið var um klukkan 22 en hið síðara eftir miðnætti.Lesa meira

true

Tvisvar sama dag þurfti að hafa afskipti af veiðiþjófum

Alltaf er eitthvað um að fólk renni í óleyfi fyrir fisk í laxveiðiánum. Í gær bar svo við að í tvígang var fólk stöðvað við ólöglegar veiðar á svæðinu við Glanna í Norðurá. Magnús Fjeldsted veiðivörður segir í samtali við Skessuhorn að í öðru tilfellinu hafi verið um að ræða hjón með þrjú börn, en…Lesa meira

true

Gefur út kort með skilgreindu hættusvæði

Í tilkynningu frá Lögreglustjóranum á Suðurnesjum kemur fram að í dag verður opið inn á gossvæðið frá Suðurstrandarvegi.  Meðfylgjandi er uppfært kort af hættusvæði sem Veðurstofa Íslands gaf út í gær. “Leið upp að gosstöðvunum er það sem viðbragðsaðilar kalla Meradalaleið. Ganga þarf um 20 km leið fram og til baka.  Gönguferðin hentar því alls…Lesa meira