Gefur út kort með skilgreindu hættusvæði

Í tilkynningu frá Lögreglustjóranum á Suðurnesjum kemur fram að í dag verður opið inn á gossvæðið frá Suðurstrandarvegi.  Meðfylgjandi er uppfært kort af hættusvæði sem Veðurstofa Íslands gaf út í gær.

"Leið upp að gosstöðvunum er það sem viðbragðsaðilar kalla Meradalaleið. Ganga þarf um 20 km leið fram og til baka.  Gönguferðin hentar því alls ekki öllum.  Gangan fram og til baka tekur um 5 til 7  klukkustundir.   Aðrar merktar gönguleiðir eru jafnframt opnar.  Á öðrum tímanum í nótt er áætlað að um 50 manns hafi verið inn á gossvæðinu.  Um svipað leyti þurfti að aðstoða þrjá erlenda ferðamenn sem treystu sér ekki til að ganga til baka niður Meradalaleið.  Rétt fyrir kl. eitt í nótt þurfti að aðstoða erlenda fjölskyldu með tvö lítil börn sem voru úrvinda af þreytu og koma þeim niður á bílastæði.  Það eru helst erlendir ferðamenn sem þurfa aðstoðar við. 

Lögreglumenn, björgunarsveitarmenn, landverðir og sjúkraflutningamenn eru á svæðinu.

Sem fyrr þá gengur ekki í öllum tilfellum vel að biðja fólk um að halda sig utan hættusvæðis.    Við biðjum því fólk um að haga sér í samræmi við fyrirmæli lögreglu og björgunarsveita og fara ekki inn á merkt hættusvæði.  

Mikilvægt er að hafa í huga að gossvæðið er hættulegt svæði þar sem aðstæður geta breyst skyndilega.   Lögregla varar fólk við að dvelja nærri gosstöðvunum vegna gasmengunar.  Hætta eykst þegar vind lægir.  Þá geta lífshættulegar gastegundir safnast í dældum og geta reynst banvænar.  Nýjar gossprungur geta opnast með litlum fyrirvara og glóandi hraun getur fallið úr hraunjaðri og hröð og skyndileg framhlaup orðið þar sem nýjar hrauntungur brjótast fram sem erfitt getur verið að forðast á hlaupum.

Mælt er með því að fólk noti rykgrímur til að forðast mengun frá gróðureldum.   Fólk fer að gosstöðvunum á eigin ábyrgð.   Þá er lögð áhersla á að ekki sé farið með börn á svæðið og að fólk með hjarta- eða lungnasjúkdóma gangi ekki að gosinu, eða þungaðar konur.  Það er vegna hugsanlegrar gasmengunar en einnig vegna reyksins frá gróðureldum.  Þá er gangan löng og reynist mörgum erfið.

Göngumenn klæði sig eftir veðri, taki með sér nesti og gleymi ekki að hafa næga hleðslu á farsímum.   Ekki er tryggt öryggi farsíma á svæðinu. 

Bílum skal lagt á merktum stæðum við Suðurstrandarveg en ekki í vegkanti Suðurstrandarvegar. 

Þeir gangi að gosstöðvum sem treysta sér til þess, vel búnir og nestaðir.  Fylgist með vindátt og fréttaflutningi." 

Gefur út kort með skilgreindu hættusvæði - Skessuhorn