
Mengun frá gosinu berst í dag yfir vestanvert landið
Í dag er spáð hægri suðlægri og suðaustlægri vindátt sem þýðir að mengun frá eldgosinu við Litla-Hrút á Reykjanesi er að berast yfir sunnan- og vestanvert landið. Mest gæti mengunin orðið á Snæfellsnesi, samanber graf Veðurstofunnar hér að neðan. Meðfylgjandi ljósmynd var tekin á Breiðinni á Akranesi nú rétt í þessu. Á henni sést að mengunarskýið er talsvert, en greina má Akrafjallið engu að síður í bláleitri móðunni.
Á þeim svæðum á landinu þar sem hætta er á brennisteinsmengun er ráðlagt fyrir þá sem hafa viðkvæm lungu að fylgjast vel með stöðu loftgæða og fylgja ráðleggingum Umhverfisstofnunar ef mengun er til staðar. Hægt er að fá nánari upplýsingar um það á vef Veðurstofunnar.
Spá veðurvaktar um gasdreifingu í dag, föstudag: „Suðaustan 5-10 m/s í dag, en lægir á morgun, laugardag. Gasmengun berst því til norðvesturs í átt að Vogum, Garði og austasta hluta Reykjanesbæjar og getur gasið náð til Snæfellsness. Gömul gasmengun gæti einnig gert vart við sig á Suðurlandi og höfuðborgarsvæðinu.
Þá er móða frá gosinu farin að blandast andrúmsloftinu og minnkar skyggni til muna.“
