Ingjaldshólskirkja, blómstrandi lúpínur í forgrunni og jökullinn yfir. Ingjaldshóll er í grennd við Hellissand og kirkjan er elsta steinsteypta kirkja á landinu, reist árið 1903. Sagnir voru um að sumarið 1477 hefði tiginn maður haft vetursetu á Ingjaldshóli. Mögulega hefur það verið Kristófer Kólumbus sem vildi kynna sér siglingar norrænna manna vestur um haf. Ljósmyndir: Sumarliði

Flogið um Snæfellsnes – myndasyrpa

Sumarliði Ásgeirsson fréttaritari Skessuhorns í Stykkishólmi fór á stúfana með dróna í góða veðrinu fyrir stuttu og myndaði náttúru og sögustaði á Snæfellsnesi. Á flestum myndanna er jökullinn í baksýn, enda er Snæfellsnes ríki hans. Það getur verið fróðlegt að sjá afraksturinn þegar flygildinu er brugðið á loft því þá sjáum við landið og náttúruna frá nýju sjónarhorni.

Flogið um Snæfellsnes - myndasyrpa - Skessuhorn