
Frá Miðsumarhátíð Ungmennafélagsins Hlíðarinnar sem fram fór um liðna helgi í Samkomuhúsinu við Þverárrétt.
Ungmennafélagið Hlíðin endurvakið
Ungmennafélagið Hlíðin var starfandi í Þverárhlíð í Borgarfirði um miðja síðustu öld en félagið er talið hafa verið stofnað árið 1942. Stofnendur þess voru sextán talsins en það var hópur bænda frá Kvíum, Hermundarstöðum, Örnólfsdal, Hömrum, Grjóti, Högnastöðum, Norðtungu og Lækjarkoti sem stofnuðu félagið. Ungmennafélagið starfaði í u.þ.b. 35 ár áður en starfsemi þess lognaðist hægt og rólega út af á áttunda áratug síðustu aldar.