
Myndin er tekin við Kaldármela. Þarna sést glöggt hvernig Vegagerðin hefur málað rendur í utanverðan veginn til að vara ökumenn við að aka ekki of utarlega á hann. Af því leiðir að lítið bil er milli bíla sem mætast á veginum. Ljósm. mm
Viðhald á Snæfellsnesvegi þolir enga bið
Stjórn Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi ræddi samgöngumál á fundi sínum 22. júní síðastliðinn og samþykkti þar ályktun til stjórnvalda um að veita nú þegar fjármunum í viðhaldsverkefni á vegi nr. 54, Snæfellsnesvegi. Tekið var fram að viðhald þar, sérstaklega á 19 km kafla á milli bæjanna Brúarhrauns og Dalsmynnis, þyldi enga bið. Þar með var tekið undir áhyggjur Vegagerðarinnar um að ef ekki yrði farið í endurbætur fljótlega þurfi að ráðast í aðgerðir eins og að draga úr umferðarhraða til þess að tryggja umferðaröryggi á veginum.