Svipmynd frá Akranesi. Ljósm. mm

Unnið að því að bæta réttarstöðu og húsnæðisöryggi leigjenda

Starfshópur innviðaráðherra, skipaður fulltrúum stjórnvalda og aðilum vinnumarkaðarins, hefur skilað tillögum að víðtækum breytingum á húsaleigulögum til að bæta réttarstöðu og húsnæðisöryggi leigjenda. Starfshópurinn skilaði tillögum sínum til ráðherra í formi draga að frumvarpi um breytingar á húsaleigulögum (nr. 36/1994) sem hafa verið birt í samráðsgátt stjórnvalda. Hægt er að senda inn umsögn eða ábendingar til og með 21. ágúst. Frumvarp innviðaráðherra verður lagt fram á haustþingi að samráði að loknu um tillögur starfshópsins.

Unnið að því að bæta réttarstöðu og húsnæðisöryggi leigjenda - Skessuhorn