
Lýsir eftir eiganda bólfæris sem fannst utan við Straumfjörð
Svanur Steinarsson hlunnindabóndi í Straumfirði á Mýrum sendi Skessuhorni línu. Hann kveðst hafa verið að koma úr dúntekju þegar hann sá bólfærið á meðfylgjandi myndum fast á skeri utan við Straumfjörð. „Ég er búinn að láta Landhelgisgæsluna vita og er að vona að þetta komist til rétts eiganda þar sem það er örugglega AIS sendir á þessu, (númer er á annarri myndinni). Kannski er þetta frá einhverjum báti sem hefur verið með veiðarfæri í Faxaflóa,“ segir Svanur.
Eins og sjá má á meðfylgjandi mynd er um spænskt bólfæri að ræða, með framleiðslunúmerinu: M3P-34292.
