Fréttir

true

Vilja finna aðra leið en aka með börn um fjallveg til skóla

Eins og kunnugt er hefur skólahald í Laugargerðisskóla á Snæfellsnesi verið lagt niður en þar stunduðu innan við tuttugu nemendur nám síðasta vetur. Eyja- og Miklaholtshreppur gerði fyrr í sumar þjónustusamning við Sveitarfélagið Stykkishólm um skólagöngu barna úr hreppnum. Það hentar þó ekki öllum jafn vel og hefur nú verið samþykkt að útbúa reglur um…Lesa meira

true

Ástráður skipaður ríkissáttasemjari

Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra, hefur skipað Ástráð Haraldsson í embætti ríkissáttasemjara til fimm ára frá og með 18. júlí.  Embættið var auglýst laust til umsóknar 2. júní sl. Alls bárust sex umsóknir og voru umsækjendur metnir af ráðgefandi hæfnisnefnd sem félags- og vinnumarkaðsráðherra skipaði. Niðurstaða hennar var að tveir umsækjendur væru mjög vel…Lesa meira

true

Útiloka flugvöll í Hvassahrauni

Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík lögðu fram bókun í borgarstjórn í síðustu viku þar sem þeir árétta að flugvöllur í Hvassahrauni sé slæm hugmynd fyrir framtíðar flugvallarstæði: „Þriðja eldgosið á Reykjanesskaga á jafnmörgum árum sýnir að nýtt gostímabil er hafið á svæðinu, sem gæti staðið öldum saman. Jarðfræðingar benda á að það mynstur virðist vera að…Lesa meira

true

Óttast var um kajakræðara

Laust fyrir klukkan 21 í gærkvöldi voru nærliggjandi björgunarsveitir kallaðar út með næstmesta forgangi (F2). Til tveggja manna hafði sést á kajak úti á miðju Skorradalsvatni og hafði að sögn sjónarvotta annar þeirra fallið í vatnið. Nokkru síðar var aðstoðarbeiðni afturkölluð þar sem mennirnir höfðu náð landi heilir á húfi.Lesa meira

true

Ferðaþjónustan er að flytja út gestrisni þjóðarinnar

Verkefninu „Góðir gestgjafar“ var hleypt af stokkunum á veitingastaðnum Önnu Jónu í Tryggvagötu á föstudaginn. Þar opnuðu þau Lilja Dögg Alfreðsdóttir ferðamálaráðherra, Bjarnheiður Hallsdóttir formaður Samtaka ferðaþjónustunnar og Arnar Már Ólafsson ferðamálastjóri vefsíðu verkefnisins og birtu sín póstkort á samfélagsmiðlum. „Verkefnið er hvatning til landsmanna um að njóta þess mikilvæga hlutverks að vera gestgjafar og…Lesa meira

true

Víkingar með öruggan sigur gegn Hetti/Huginn

Víkingur í Ólafsvík trónir nú á toppi 2. deildar eftir öruggan 3:0 sigur gegn Hetti/Huginn í Ólafsvík í gær. Eftir sigurinn er liðið nú með fjögurra stiga forskot á toppi deildarinnar. Það voru tvö mörk með þriggja mínútna millibili um miðbik fyrri hálfleiks sem lögðu grunninn að öruggum sigri heimamanna í leiknum. Það var Björn…Lesa meira

true

Reynir fékk skell gegn Álafossi

Reynir frá Hellissandi fékk slæma útreið þegar liðið tapaði 8:1 gegn Álafossi í leik sem fram fór í Mosfellsbæ á laugardaginn. Eftir aðeins tveggja mínútna leik náðu heimamenn í Álafossi forystunni með marki Einars Björns Þorgrímssonar, en Úlfar Ingi Þrastarson jafnaði leikinn á 11. mínútu fyrir Reynismenn. Aðeins þremur mínútum síðar náði Einar Björn forystunni…Lesa meira

true

Hestamannafélagið Glaður hélt reiðnámskeið

Dagana 27. – 30. júní sl. var haldið reiðnámskeið í Búðardal fyrir börn á aldrinum 8 – 16 ára. Kennari var Laufey Fríða Þórarinsdóttir, reiðkennari frá Hólum, og henni til aðstoðar var Kristín Þórarinsdóttir. Námskeiðið var vel sótt og stemningin góð þótt veðrið hefði vissulega mátt vera aðeins betra. Nemendur komu með sína hesta og…Lesa meira

true

Styttist í að KFUM húsið hverfi af sjónarsviðinu

Í þessari viku hafa starfsmenn byggingafyrirtækisins Bestla unnið við að tæma innréttingar og tæki úr KFUM og K húsinu við Garðabraut 1 á Akranesi. Húsið var byggt á árunum 1975-80 og þjónaði lengst af starfsemi KFUM. Undanfarin tvö ár hefur það þjónað sem mötuneytishús fyrir starfsmenn byggingafélagsins Bestla sem á húsið. Það verður fljótlega jafnað…Lesa meira

true

Rögnvaldur gerður að heiðursfélaga í Sæljóni – myndir

Síðdegis í gær bauð Sæljón, félag smábátasjómanna á Akranesi, sjómönnum og öðrum gestum til veislu við fiskmarkaðinn á Akranesbryggju. Hér var um einskonar uppskeruhátíð að ræða hjá félaginu í kjölfar þess að strandveiðum sumarsins lauk fyrr í vikunni. Til máls tóku Böðvar Ingvason og Jóhannes Simonsen stjórnarmenn í félaginu. Jóhannes las upp yfirlýsingu frá Landssambandi…Lesa meira