Fréttir

true

„Var erfitt í þessari blíðu“

Laxveiðin potast áfram en veðurfarið er upp og niður. Hlýtt einn daginn en kalt þann næsta. En það mætti rigna á næstu dögum, enginn veiðimaður myndi segja neitt við því. „Við fengum laxa en þetta var erfið veiði skal ég segja þér kallinn,“ sagði Jógvan Hansen sem var við veiðar i uppáhalds ánni sinni; Langá…Lesa meira

true

Frábær endurkomusigur hjá Kára – Hilmar Elís með þrennu

Knattspyrnulið Kára lék á alls oddi í síðari hálfleik þegar lið ÍH kom í heimsókn í Akraneshöllina í gærkvöldi. Gestirnir leiddu 0:1 í hálfleik en Káramenn gerðu sér lítið fyrir og skoruðu fjögur mörk í síðari hálfleiknum og sigruði í leiknum 4:1.  Þar fór fremstur í flokki Hilmar Elís Hilmarsson sem skoraði þrennu í leiknum.…Lesa meira

true

Góður sigur hjá Skallagrími gegn Hamri

Skallagrímur vann góðan 3:1 sigur gegn Hamri frá Hveragerði í leik sem fram fór í Borgarnesi í gærkvöldi í 4. deild karla í knattspyrnu. Með sigrinum náðu þeir að spyrna sér frá tveimur neðstu liðum deildarinnar og eru aðeins tveimur stigum frá Hamri, sem er sæti ofar. Það var Hlöðver Már Pétursson sem náði forystunni…Lesa meira

true

Haraldur skipaður í verkefnisstjórn Sundabrautar

Samband íslenskra sveitarfélaga hefur tilnefnt Harald Benediktsson, bæjarstjóra Akraneskaupstaðar, í verkefnisstjórn um undirbúning Sundabrautar í stað Sævars Freys Þráinssonar fyrrum bæjarstjóra. Á vef Stjórnarráðsins kemur fram að verkefnisstjórnin hefur það hlutverk að hafa umsjón með og fylgja eftir undirbúningi Sundabrautar, en stefnt er að því að framkvæmdir hefjist 2026 og að hún verði tekin í…Lesa meira

true

Fjalla um staðaranda og ímynd Dalanna

Byggðaráð Dalabyggðar hefur skipað tvo fulltrúa í starfshóp sem fjalla mun um staðaranda og ímynd Dalanna. Það eru þau Garðar Freyr Vilhjálmsson og Jóhanna María Sigmundsdóttir sem verða fulltrúar sveitarfélagsins í hópnum. Um er að ræða verkefni sem fékk styrk úr verkefninu C1 sem er hluti af byggðaáætlun. Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi (SSV) leiða verkefnið…Lesa meira

true

Annríki í sýningum Sporsins í sumar

Talsvart annríki er í sumar hjá Danshópnum Sporinu sem iðkar og sýnir íslenska þjóðdansa. Hópurinn er nýkominn frá Búlgaríu þar sem hann tók þátt í danshátíð í borginni Montana í júníbyrjun og var einn fjögurra erlendra hópa sem þar var boðið að taka þátt. Hópurinn sýndi alls um fimmtán dansa á stóru útisviði í borginni.…Lesa meira

true

Ólafsdalshátíð frestað vegna mikilla framkvæmda á staðnum

„Ólafsdalsfélaginu þykir leitt að tilkynna að vegna mikilla framkvæmda Minjaverndar hf. við skólahúsið í Ólafsdal í Gilsfirði verður ekki af sumaropnun félagsins 2023. Vegna framkvæmdanna og ófullnægjandi aðstöðu fyrir undirbúningshóp og gesti hátíðarinnar verður Ólafsdalshátíð 2023 jafnframt felld niður. Ólafsdalsfélagið stefnir á að halda að veglega Ólafsdalshátíð árið 2024,“ segir í tilkynningu. Þá segir að…Lesa meira

true

Gul viðvörun fyrir vestanvert landið til laugardags

Veðurstofufólk spáir því að það hvessi rækilega hér á vestanverðu landinu í dag. Gefin hefur verið út gul viðvörun fyrir Faxaflóa- og Breiðafjarðarsvæðið frá því klukkan 15 í dag og er hún í gildi samfleytt til hádegis á laugardaginn. Við Faxaflóa og Breiðafjörð verður norðan hvassviðri eða jafnvel stormur á stöku stað, einkum á sunnanverðu…Lesa meira

true

Þórarinn er sem fyrr virkur í ljósmyndum á gosstöðvunum

Þórarinn Jónsson ljósmyndari og leiðsögumaður á Akranesi hefur í síðustu eldgosum á Reykjanesi verið virkur við ljósmyndun af eldsumbrotunum. Enginn slaki er á því hjá honum í þessu gosi. Daginn eftir að gosið hófst fékk hann aðgang að svæðinu og hefur farið í ferðir síðan. Meðfylgjandi myndir sendir Þórarinn lesendum Skessuhorns til upplýsingar. Þarna má…Lesa meira

true

Guðrún Karítas hálfum metra frá því að komast í úrslit

Guðrún Karítas Hallgrímsdóttir er ein þriggja keppenda á Evrópumeistaramótinu U23 ára sem fer fram í borginni Espoo í Finnlandi dagana 13.-16. júlí og keppir þar í sleggjukasti. Hinir eru Guðbjörg Jóna Bjarnadóttir (ÍR) í 100 og 200 metra hlaupi og Elísabet Rut Rúnarsdóttir (ÍR) sem einnig keppir í sleggjukasti. Elísabet tryggði sér sæti í úrslitum…Lesa meira