Fréttir

true

Níu vilja verða forstjórar Lands og skóga

Starf forstöðumanns nýrrar sameinaðrar stofnunar landgræðslu og skógræktar; Land og skóga, var auglýst í júní. Níu sóttu um starfið. Matvælaráðherra skipar í embættið að undangengnu mati hæfnisnefndar. Umsækjendur eru: Aðalsteinn Sigurgeirsson, fagmálastjóri Auður Önnu Magnúsdóttir, framkvæmdastjóri Ágúst Sigurðsson, fagstjóri Edda Sigurdís Oddsdóttir, sviðsstjóri Gísli Tryggvason, lögmaður Gunnlaugur Guðjónsson, sviðsstjóri Hjalti J. Guðmundsson, skrifstofustjóri Hreinn Óskarsson,…Lesa meira

true

Varað er við hvassviðri í nótt og fyrramálið

Vegagerðin hefur sent út viðvörun vegna veðurs í kvöld og fram á morgundaginn: „Það hvessir með norðanátt síðdegis í dag og hviður verða vestantil á landinu, allt að 30-35 m/s í nótt og á morgun, ekki síst á sunnanverðu Snæfellsnesi.” Við þessar aðstæður er mjög varasamt að vera á ferð með ferðavagna sem taka á…Lesa meira

true

Björgunarsveitir á gosvakt á Reykjanesi

Nú stendur yfir eldgos við Litla-Hrút á Reykjanesi og því hefur, eins og við fyrri gos, verið óskað eftir aðkomu björgunarsveita til að sinna gæslu og lokunum á gossvæðinu. Auk annarra hafa björgunarsveitir af Vesturlandi sinnt gosgæslu frá því um helgina. Greitt er fyrir þessa öryggisgæslu í síðustu tveimur eldgosum og hafa tekjur af vöktum…Lesa meira

true

Fimmtíu ára afmæli Golfklúbbs Borgarness um næstu helgi

Félagar í Golfklúbbi Borgarness fagna 50 ára afmæli félagsins laugardaginn 16. júlí nk. Haldið verður upp á afmælið með afmælismóti og þá er búið að rita afmælisblað með 50 ára sögu klúbbsins, undir ritstjórn Heiðars Lind Hanssonar, sem gefið verður út á laugardaginn, bæði á prenti og á nýuppfærðri heimasíðu golfklúbbsins. Rétt tæplega 300 meðlimir…Lesa meira

true

Gott kaffi og góður andi í Sjávarborg í Stykkishólmi

Hjónin Sigríður Jóhannesdóttir og Skarphéðinn Berg Steinarsson reka kaffi- og gistihúsið Sjávarborg í Stykkishólmi sem er staðsett á Hafnargötu 4. Blaðamaður Skessuhorns kom við í þessu fallega græna húsi á dögunum og það verður að segjast eins og er að það er góður andi í húsinu og notaleg og ljúf stemning. Að sögn þeirra hjóna…Lesa meira

true

Umf. Stafholtstungna íhugar að stofna rafíþróttadeild

Ungmennafélag Stafholtstungna hyggst stofna rafíþróttadeild innan félagsins, en rafíþróttir hafa rutt sér til rúms undanfarin ár þar sem um er að ræða heilbrigða nálgun á tölvuleikjanotkun. Á vefsíðu Rafíþróttasambands Íslands kemur fram að á æfingum rafíþrótta sé stuðlað að andlegum styrk og félagsþroska ungmenna. Einnig er lögð áhersla á líkamlega hreyfingu og heilbrigði þar sem…Lesa meira

true

Ökumaður flutningabíls rekinn eftir vítaverðan akstur

Á samfélagsmiðlum var í gær deilt myndbandi sem Arna Sjöfn Ævarsdóttir, vegfarandi á þjóðvegi 1 ofan við Borgarnes, tók. Sýnir það hvar ökumaður flutningabíls með aftanívagn tekur framúr fjölda bíla og ekur á móti bílum sem koma úr gagnstæðri átt. Stórhætta skapaðist og má þakka árvekni annarra ökumanna að ekki urðu slys á fólki. Fréttavefurinn…Lesa meira

true

Enn er óviðunandi símasamband í Hítardal

Ekki er enn komið ásættanlegt símasamband við Hítardal á Mýrum þrátt fyrir að komin séu mörg ár frá því að Finnbogi Leifsson bóndi þar vakti skýrt athygli á vandamálinu, ekki síst af öryggisástæðum. Rifja má upp að í frétt í Skessuhorni árið 2014 kemur fram að Finnbogi fari yfirleitt nokkrar ferðir á sumri inn að…Lesa meira

true

Smöluðu ágangsfé og fluttu til síns heima

Síðastliðinn laugardag fór fram smölun ágangsfjár í landi Skarðshamra í Norðurárdal að frumkvæði Borgarbyggðar, en eftir að féð hafði verið tilsagt. Alls var smalað 63 kindum. Í frétt á upplýsingavef sveitarfélagsins segir að gott samstarf hafi verið haft við Matvælastofnun og á vegum stofnunarinnar voru á staðnum eftirlitsdýralæknir og dýraeftirlitsmaður sem mátu ástand fjárins. „Ætlunin…Lesa meira

true

Ekið á barn á hjóli

Ökumaður á rauðum bíl ók á stúlku á reiðhjóli sem var á leið sinni yfir gangbraut við Bónus á Akranesi í vikunni sem leið. Stúlkan hlaut ekki teljandi skaða af en reiðhjólið var ónýtt. Ökumaður stöðvaði og gaf sig á tal við stúlkuna og sagðist ætla að vera í sambandi vegna tjónsins. Stúlkan mætti svo…Lesa meira