
Það vantaði ekki úrvalið til að fá sér með kaffinu.
Gott kaffi og góður andi í Sjávarborg í Stykkishólmi
Hjónin Sigríður Jóhannesdóttir og Skarphéðinn Berg Steinarsson reka kaffi- og gistihúsið Sjávarborg í Stykkishólmi sem er staðsett á Hafnargötu 4. Blaðamaður Skessuhorns kom við í þessu fallega græna húsi á dögunum og það verður að segjast eins og er að það er góður andi í húsinu og notaleg og ljúf stemning. Að sögn þeirra hjóna hafa þau verið með þennan rekstur í tíu ár og gengið vel. „Starfsemi kaffihússins hefur verið að aukast. Til viðbótar við gott kaffi og kaffidrykki þá höfum við verið að efla okkur í framboði á mat og drykk fyrir vegan gesti. Það er sífellt að aukast og ánægjulegt að taka þátt í þeirri þróun.“