Fréttir

true

Kaupgleði landans var töluverð í júní

Kortavelta Íslendinga hefur aukist jafnt og þétt á árinu. Í nýjum tölum Rannsóknaseturs verslunarinnar um kortaveltuna hér á Íslandi í júni kemur fram að Íslendingar eyddu 9,3% meira í júní í ár samanborið við sama mánuð í fyrra, eða 94,24 milljörðum króna. Erlendir ferðamenn eyddu 36 milljörðum króna í júní hér heima en er það…Lesa meira

true

Gýgar farnir að hlaðast upp – myndir

Virkni í jarðeldunum við Litla-Hrút á Reykjanesi er svipuð og hún var í gær, en vöktunar- og viðbragðsaðilar taka fram að gosið getur breyst með litlum fyrirvara. Að sögn Almannavarna hefur dregið verulega úr afli og framleiðni gossins. Þó er meiri kraftur í því en gosum síðustu tveggja ára. Ekki er útilokað að ný gosop…Lesa meira

true

Meira fjármagn þarf til að viðhalda leikvöllum á Akranesi

Aðgerðaáætlun um viðhald á leikvöllum liggur fyrir, vinna við úrbætur er hafin en fjármagn til viðhalds er lítið Á Akranesi eru 15 hverfisleikvellir á dreif um bæinn. Eru þeir misjafnir í sniðum og að stærð og mega margir muna fífil sinn fegurri. Skessuhorn hefur á liðnum vikum fengið nokkrar ábendingar um illa farna leikvelli í…Lesa meira

true

Stefnir á að opna miðalda- og víkingaböð í Borgarnesi

Rætt við Þorstein Pálsson sem vinnur við að koma verkefninu á koppinn Þorsteinn Pálsson er frá Signýarstöðum í Hálsasveit en flutti fyrir ári síðan til Borgarness ásamt eiginkonu sinni Lilju Björgu Ágústsdóttur og sonum þeirra fjórum; Benjamín Karli 21 árs, Ágústi Pál 18 ára, Brynjari Þór 13 ára og Arnþóri Frey 6 ára. Þorsteinn er…Lesa meira

true

Opna í dag sýningu í Grundarfirði

Í dag, miðvikudaginn 12. júlí klukkan 10, opnar listafólkið Vigdís Bjarnadóttir, Jón Þorsteinsson og Einar S Sigurjónsson listsýninguna Art Exhibition í gömlu netagerð G.Run í Grundarfirði. Netagerðin er við hlið Bjargarsteins Mathúss. Listafólkið á allt rætur eða tengingu við Snæfellsnes. Vigdís er ættuð úr Ólafsvík og Einar er eiginmaður hennar. Jón var lengi sóknarprestur í…Lesa meira

true

Sótt um framkvæmdaleyfi fyrir strandstíg um Borgarvog

Umhverfis- og landbúnaðardeild Borgarbyggðar hefur lagt fram umsókn um framkvæmdarleyfi fyrir fyrsta hluta strandstígs meðfram Borgarvogi í Borgarnesi. Stígurinn mun koma til með að liggja frá strandsvæði vestan Kjartansgötu 1, meðfram Kjartansgötu og Kveldúlfsgötu. Stígurinn mun svo koma norður fyrir Dílatanga og að Kirkjugarðsvík. Framkvæmdirnar munu felast í endurbótum á núverandi stíg neðan við Kveldúlfsgötu…Lesa meira

true

Nýr Safe Travel vefur opnaður

Lilja Alfreðsdóttir ferðamálaráðherra opnaði í dag formlega nýjan Safe Travel vef í Björgunarmiðstöðinni í Skógarhlíð í Reykjavík. Undanfarna mánuði hefur verið unnið að mikilli uppfærslu á vefnum og samsvarandi smáforriti. Fyrir utan útlitsbreytingu hefur allur texti á vefnum verið gerður hnitmiðaðri og auðlesnari. Þá verður einfaldara fyrir ferðafólk að skrá ferðaáætlun sína á vefnum og…Lesa meira

true

Fimm undir áhrifum

Fimm ökumenn í landshlutanum voru teknir við akstur undir áhrifum fíkniefna eða áfengis í liðinni viku. Voru allir stöðvaðir vegna grunsamlegt aksturslags og flestir við hefðbundið eftirlit lögreglu. Einn þeirra missti prófið í annað sinn á lífsleiðinni og var annar ökumaður stöðvaður tvisvar, bæði í Borgarnesi og á Akranesi. Allir missa þeir ökuréttindi sín.Lesa meira

true

Hafa hug á að stækka búningsklefa

Minnisblað var lagt fram á fundi byggðarráðs Borgarbyggðar fyrir síðustu helgi þar sem farið var yfir þann möguleika að stækka búningsklefa og salernisaðstöðu í Íþróttahúsinu í Borgarnesi. Minnisblaðið er unnið af umsjónarmanni fasteigna og greinir frá tillögum um að stækka búningsklefa kvenna ásamt því að koma fyrir einstaklingsklefum innan dyra sem og utan ásamt salerni…Lesa meira

true

Meitill GT tækni áfram með þjónustu í göngunum

Hjá Vegagerðinni voru nýverið opnuð til tilboð í rekstur og þjónustu í Hvalfjarðargöngum árin 2023-2025. Í aðalatriðum felst verkið í útkallsþjónustu, þ.e. að bregðast við útköllum vegna bilana eða atvika sem verða í göngunum og bregðast þarf strax við. Þá felst í verkinu umferðarstjórnun þegar göngunum er lokað eða umferð takmörkuð í gegnum þau, t.d.…Lesa meira