Fréttir

true

Ungmennafélag Grundarfjarðar 90 ára

Það var 10. júlí árið 1933 sem Ungmennafélag Grundarfjarðar var stofnað í Eyrarsveit á Snæfellsnesi. Þar af leiðandi varð félagið 90 ára í gær og af því tilefni var haldin sýning og boðið í smá kaffisamsæti í Samkomuhúsi Grundarfjarðar þann dag. Sigríður Guðbjörg Arnardóttir hélt smá tölu og Björg Ágústsdóttir bæjarstjóri Grundarfjarðar færði félaginu veglega…Lesa meira

true

Ný síkisbrú hefur verið opnuð

Vegagerðin hefur undanfarna mánuði unnið að endurbótum á vegi 510 við Ferjukotssíkin í Borgarfirði. Þar stóðu áður tvær brýr sem skemmdust í leysingum í febrúar síðastliðnum ásamt því að vegurinn að þeim varð ófær eftir mikil flóð. Í kjölfar tjónsins var ákveðið að brýrnar yrðu fjarlægðar og ný lengri brú sett í stað þeirra. Nýja…Lesa meira

true

Hvalfjarðargöngin eru 25 ára í dag

Í dag, 11. júlí, eru rétt 25 ár síðan Hvalfjarðargöng voru formlega tekin í notkun. Óhætt er að segja að þessi vegaframkvæmd sé einstök á landsvísu. Hvalfjarðargöng gjörbreyttu aðstæðum fólks, ekki síst á Vesturlandi. Aðstæður til atvinnusóknar breyttust, sem og aðgengi að vöru og þjónustu. Göngin voru fyrsta stóra einkaframkvæmd í samgöngumálum hér á landi…Lesa meira

true

Jarðeldar á ný á Reykjanesi

Eldgos hófst við fjallið Litla-Hrút á Reykjanesi klukkan 16:40 í gær. Það byrjaði með nokkrum hvelli og var fyrstu tímana margfalt stærra en fyrri gosin tvö á Reykjanesskaga árin 2021 og 2022. Nú gýs um þremur kílómetrum norðar en síðast. Strax í nótt dró svo úr styrk gossins og er það nú skilgreint sem aflítið…Lesa meira

true

Héldu hlutaveltu til stuðnings Oki

Frænkurnar Vaka Iðunn og Febrún Sól héldu nýverið hlutaveltu í Húsafelli. Söfnuðu þær fé til styrktar Björgunarsveitinni Oki, en afi þeirra Jón Bergsson hafði fullvissað þær um að það væri björgunarsveitin sem kæmi til aðstoðar ef þyrfti. Alls söfnuðu þær 16 þúsund krónum sem amma þeirra Guðrún Sederholm kom í réttar hendur.Lesa meira

true

Rabbý opnaði glerlistarsýningu sína

Síðastliðinn laugardag opnaði glerlistakonan Rabby, Hrafnhildur Ásgeirsdóttir, sýningu í Norska húsinu í Stykkishólmi. Hún hefur á síðustu fjórum áratugum ár lengst af búið og starfað í Bandaríkjunum ásamt eiginmanni sínum Kristjáni Tómasi Ragnarssyni lækni. Rabby útskrifaðist sem skurðhjúkrunarfræðingur frá Hjúkrunarskóla Íslands árið 1968 og vann um tíma sem slíkur bæði á Íslandi og í Bandaríkjunum…Lesa meira

true

Töfrasýning, tónleikar og smiðjur á Náttúrubarnahátíð á Ströndum

Það verður mikið fjör á Ströndum helgina 14.-16. júlí. Þá verður haldin árleg Náttúrubarnahátíð á Sauðfjársetrinu, sem er skammt sunnan við Hólmavík. Að venju verður þar fjölbreytt og skemmtileg dagskrá, en um er að ræða fjölskylduhátíð þar sem börn og fullorðnir fá tækifæri til að finna eða rækta sitt innra náttúrubarn. Á dagskránni eru bæði…Lesa meira

true

Guðný ráðin í starf sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs

Ráðið hefur verið í starf sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs hjá Borgarbyggð. Guðný Elíasdóttir tekur nú við starfinu. Sjö umsóknir bárust en það var Hagvangur sem hafði umsjón með ráðningarferlinu ásamt sveitarstjóra, mannauðsstjóra og formanni byggðarráðs. ,,Guðný lauk B.Sc. í byggingarfræði frá háskólanum Vitus Bering í Danmörku árið 2004 og námi í tækniteiknun frá Iðnskólanum í…Lesa meira

true

Brimborg úthlutað lóð fyrir hraðhleðslustöðvar í Borgarnesi

Brimborg lagði í byrjun júní fram erindi til byggðarráðs Borgarbyggðar þar sem fyrirtækið óskaði eftir því að setja niður bráðabirgðar hraðhleðslustöð á lóðina Fitjar 1 sem staðsett er vestan megin við hringtorgið í Borgarnesi. Fyrirhugað er að setja upp tvær stöðvar, eina 180kw og aðra 120kw þar sem hver hleðslusöð væri með tveimur tengingum og…Lesa meira

true

Erfðablöndun í íslenska laxastofninum staðfest víða

Sláandi niðurstöður koma fram í nýrri rannsókn Hafrannsóknastofnunar sem staðfesta mikla erfðablöndun villtra íslenskra laxastofna við norskan eldislax. Landssamband veiðifélaga bendir á að bændur, veiðiréttarhafar og allir sem hafa hagsmuni af stangveiði hér á landi sem og náttúruverndarsinnar þurfi að hafa miklar áhyggjur af þessu. Þá gagnrýnir Landssamband veiðifélaga hversu seint niðurstöður úr rannsókn Hafró…Lesa meira