Hvalfjarðargöng voru fyrsta samgöngumannvirkið hér á landi sem unnið var í einkaframkvæmd. Gjaldtaka var fyrir umferð fyrstu tvo áratugina eða allt þar til Spölur afhenti ríkinu göngin skuldlaus til brúks síðla árs 2018. Ljósm. úr safni Skessuhorns.

Hvalfjarðargöngin eru 25 ára í dag

Í dag, 11. júlí, eru rétt 25 ár síðan Hvalfjarðargöng voru formlega tekin í notkun. Óhætt er að segja að þessi vegaframkvæmd sé einstök á landsvísu. Hvalfjarðargöng gjörbreyttu aðstæðum fólks, ekki síst á Vesturlandi. Aðstæður til atvinnusóknar breyttust, sem og aðgengi að vöru og þjónustu. Göngin voru fyrsta stóra einkaframkvæmd í samgöngumálum hér á landi og einstök að því leyti að þau voru að fullu kostuð með innheimtu veggjalds. Eins og til stóð afhenti Spölur hf., eigandi og rekstraraðila ganganna, mannvirkið skuldlaust til íslenska ríkisins tuttugu árum síðar haustið 2018, en þá um leið var innheimtu veggjalds hætt og Vegagerðinni falið að taka við rekstrinum.