
Jarðeldar á ný á Reykjanesi
Eldgos hófst við fjallið Litla-Hrút á Reykjanesi klukkan 16:40 í gær. Það byrjaði með nokkrum hvelli og var fyrstu tímana margfalt stærra en fyrri gosin tvö á Reykjanesskaga árin 2021 og 2022. Nú gýs um þremur kílómetrum norðar en síðast. Strax í nótt dró svo úr styrk gossins og er það nú skilgreint sem aflítið hraungos og líkist fyrri gosunum tveimur.