Flugunni kastað fyrir laxa í Dunká á Skógarströnd. Ljósm. úr safni.

Erfðablöndun í íslenska laxastofninum staðfest víða

Sláandi niðurstöður koma fram í nýrri rannsókn Hafrannsóknastofnunar sem staðfesta mikla erfðablöndun villtra íslenskra laxastofna við norskan eldislax. Landssamband veiðifélaga bendir á að bændur, veiðiréttarhafar og allir sem hafa hagsmuni af stangveiði hér á landi sem og náttúruverndarsinnar þurfi að hafa miklar áhyggjur af þessu. Þá gagnrýnir Landssamband veiðifélaga hversu seint niðurstöður úr rannsókn Hafró berast, en nýjustu rannsóknir sem skýrslan byggir á eru frá árinu 2020. Frá þeim tíma hefur sjókvíaeldi með frjóan lax stóraukist.

Erfðablöndun í íslenska laxastofninum staðfest víða - Skessuhorn