
Félagið gaf gamla búninga og fengu allir nýjan/gamlan búning til að brúka. Hér stilla krakkarnir sér upp í gömlum búningum UMFG. Ljósm. tfk
Ungmennafélag Grundarfjarðar 90 ára
Það var 10. júlí árið 1933 sem Ungmennafélag Grundarfjarðar var stofnað í Eyrarsveit á Snæfellsnesi. Þar af leiðandi varð félagið 90 ára í gær og af því tilefni var haldin sýning og boðið í smá kaffisamsæti í Samkomuhúsi Grundarfjarðar þann dag. Sigríður Guðbjörg Arnardóttir hélt smá tölu og Björg Ágústsdóttir bæjarstjóri Grundarfjarðar færði félaginu veglega gjöf í tilefni dagsins.